Spyr hvort línuívilnun verði fyrir árabátaútgerð 18. janúar 2010 18:49
Aflakóngur smábátaflotans spyr hvort stjórnvöld ætli að veita þeim viðbótarkvóta sem róa á árabátum. Það sé í ætt við það að verðlauna menn fyrir að handbeita línu, eins og nú er áformað. Þá efast hann um réttlæti þess að ætla að leigja bara sumum sérstakan skötuselskvóta.Frumvarp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra, sem er í meðförum Alþingis, um nokkrar breytingar á kvótalögunum, veldur miklum titringi í sjávarútveginum, einkum þau áform að ríkið leigi út skötuselskvóta. Hann verður þó ekki leigður þeim sem veiða þennan fisk á upphaflegri veiðislóð við suðurströndina, frá Hvalnesi til Krýsuvíkurbjargs.Á Hornafirði spyr aflakóngur smábátasjómanna, Arnar Þór Ragnarsson, um réttlætið. Þeir geti ekki fengið kvóta úr þessum potti heldur þurfi að leigja hann á markaði fyrir 300 krónur kílóið. Á sama tíma ætli ríkið að leigja öðrum hann á 120 krónur. Það sé ekkert réttlæti í því.Annað umdeilt ákvæði gerir ráð fyrir aukinni línuívilnun en aðeins til þeirra sem eru með fólk í landi að handbeita línuna eða stokka hana. Bátur eins og Ragnar SF er hins vegar með línubeitingavél um borð og fær því ekki viðbótarkvótann.Arnar kveðst ekki vera á móti útlendingum en þetta sé ekki vinna sem Íslendingar vilji vinna í dag. Það séu einkum Pólverjar sem vinni við að beita, - þótt hann hafi ekkert á móti því, en menn séu að tala um að skaffa vinnu fyrir fólkið í landinu. Þetta séu öfugmæli miðað við þróunina í landinu í dag.Hann spyr hvort hvetja eigi menn til að snúa til baka frá vélvæðingunni. Menn fái kannski ennþá meiri ívilnun séu menn með árar um borð.
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira