Innlent

Fjölgað um 35% á vanskilaskrá

Íslendingum sem eru í svo miklum skuldakröggum að þeir eru komnir á vanskilaskrá hefur fjölgað um 35 prósent á tveimur árum. Um 22 þúsund Íslendingar eru með skuldir sem komnar eru í löginnheimtu, þar sem hefðbundnum lögfræðilegum innheimtuaðgerðum er beitt við innheimtu kröfunnar, og þar með á vanskilaskrá.

Þetta eru um átta prósent landsmanna átján ára og eldri, að því er fram kemur í samantekt miðlunarfyrirtækisins Creditinfo. Aukningin hefur verið mikil frá því fyrir bankahrun. Þegar hópurinn var hvað minnstur, seint á árinu 2007 og í upphafi árs 2008, voru tæplega sextán þúsund einstaklingar með skuldir í löginnheimtu sem lögfræðingar reyna að innheimta. Í september 2008, rétt fyrir hrun, voru ríflega 16.400 á vanskilaskrá.

Undanfarna mánuði hefur hægt á fjölgun löginnheimtumála. Það skýrist að mestu leyti á inngripum bankanna, til dæmis með frystingu á lánum, samkvæmt upplýsingum Creditinfo.

Í nýrri könnun Umboðsmanns skuldara kemur fram að fáir þeirra sem eiga yfir höfði sér nauðungaruppboð hafa nýtt sér úrræði vegna greiðsluerfiðleika.

Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra mælir á næstunni fyrir frumvarpi þar sem er gert ráð fyrir framlengingu á þeim tíma sem hægt er að sækja um frest á lokanauðungarsölu. Hann segir að niðurstaða könnunarinnar breyti ekki forsendum frumvarpsins.

„Þessi frestur rennur út í lok þessa mánaðar og það sem þetta frumvarp gerir er að lengja tímann sem hægt er að óska eftir þessum fresti til mars á næsta ári. Þannig að það er ekki farið að reyna á þetta." -bj , þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×