Innlent

Rannsaka síðustu daga Sigurplasts

Fyrri eigendur Sigurplasts eru grunaðir um að hafa fjarlægt bókhaldsgögn og hlunnfarið hluthafa. Sautján starfa hjá félaginu. Fréttablaðið/stefán
Fyrri eigendur Sigurplasts eru grunaðir um að hafa fjarlægt bókhaldsgögn og hlunnfarið hluthafa. Sautján starfa hjá félaginu. Fréttablaðið/stefán
Grunur leikur á að gögn hafi verið fjarlægð úr bókhaldi iðnfyrirtækisins Sigurplasts í Mosfellsbæ þegar fyrri eigendur fóru frá og áður en nýr framkvæmdastjóri á vegum Arion banka tók við því fyrir um hálfum mánuði. Þá hefur tölvukerfi fyrirtækisins legið niðri frá sama tíma. Ekki er vitað hvað var gert við það, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Fyrri eigendur Sigurplasts tóku við rekstrinum fyrir þremur árum en óskuðu eftir gjaldþrotaskiptum fyrir um hálfum mánuði. Sigurplast tapaði tæpum 567 milljónum króna árið 2008 og var eigið fé þá neikvætt um 528,6 milljónir. Á sama tíma námu skuldir rúmum einum milljarði. Nýrri ársreikningur liggur ekki fyrir. Fjárhagsleg endurskipulagning hafði staðið yfir um nokkurt skeið þegar upp úr slitnaði.

Fram kom í kjölfar gjaldþrotaskipta að Sigurplast hefði ekki ráðið við afborganir af gengistryggðum lánum í kjölfar gengis­hruns. Af síðasta ársreikningi má álykta að gengisfallið hafi ekki eitt og sér ýtt fyrirtækinu í þrot; nýjar lántökur hafi haft sitt að segja.

Fréttastofa RÚV sagði Arion banka hafa kært fyrri eigendur vegna gruns um misnotkun á fyrir­tækinu í aðdraganda gjaldþrotaskipta. Á meðal þess sem liggur undir er tilfærsla á innflutningi frá Sigurplasti í annað félag sem Sigurður L. Sævarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sigurplasts, stofnaði í fyrra. Efnahagsbrotadeild lögreglunnar hefur tekið skýrslu af starfsfólki Sigurplasts í tengslum við rannsóknina.

Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við segja Sigurð ekki hafa komið til starfa hjá Sigurplasti í allt að tvo mánuði fyrir gjaldþrotaskipti. Þegar skiptastjóri tók svo við rekstri Sigurplasts ásamt nýjum framkvæmdastjóra voru bókhaldsgögn horfin. Skiptastjóri leitaði til fyrri eigenda og fékk þau svör að þeir hefðu ekki talið þau örugg. Hann er nú kominn með þau í hendur.

„Ég ætla ekki að leggja mat á það hvort þetta var eðlilegt eða ekki,“ segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri Sigurplasts. Viðskiptasaga Sigurplasts í aðdraganda gjaldþrotaskipta er nú til rannsóknar.

jonab@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×