Innlent

Sæstrengur fyrir umframorku

Kárahnjúkar skila þremur til fjórum prósentum meiri raforku en áætlað var. Fréttablaðið/Vilhelm
Kárahnjúkar skila þremur til fjórum prósentum meiri raforku en áætlað var. Fréttablaðið/Vilhelm
Raforkuframleiðsla Kárahnjúkavirkjunar hefur að meðal­tali verið á bilinu þrjú til fjögur prósent umfram áætlanir á ári frá því að virkjunin var tekin í notkun.

Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar, segir að virkjunin geti framleitt nokkru meiri orku en gert var ráð fyrir í upphafi. Vinnsluaukningin fari að einhverju leyti út í almenna raforkukerfið auk þess sem samið hafi verið um aukna sölu til Fjarðaáls. Að mati sérfræðinga fyrirtækis­ins eru þetta um það bil 30 MW. Gróft útreiknað nemur tekjuaukinn af þessari auknu vinnslu nokkrum milljónum bandaríkjadala á ári.

„Yfir sumarið er mestur möguleiki á að vinna meira rafmagn í Fljótsdalsstöð. Eitt af því sem Landsvirkjun er að skoða er hvernig mögulegt sé að fjölga þeim viðskiptavinum sem byggja á og gætu nýtt sér aukaorku sem er í kerfinu hjá okkur á ólíkum tímum,“ segir hún.

Liður í því er könnun á hagkvæmni þess að leggja sæstreng til meginlandsins. „Það er ekki hugmyndin að selja orku í stórum stíl úr landi heldur orku sem ekki er hægt að nýta af því af því að hún er ótrygg,“ segir Ragna Sara. „Þetta er stór fjárfesting og það verður ekki farið í hana nema hún sé arðbær.“ -pg



Fleiri fréttir

Sjá meira


×