Enski boltinn

Aquilani: Benitez væri góður í ítalska boltanum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Ítalinn Alberto Aquilani segir að stjórinn sinn hjá Liverpool, Rafa Benitez, yrði frábær í ítalska boltanum en Juventus er sagt hafa mikinn áhuga á spænska stjóranum.

Benitez er ofarlega á óskalista Juve sem ræður nýjan þjálfara í sumar.

„Benitez hefur aldrei spurt mig út í Ítalíu eða ítölsku deildina en við grínumst stundum með þetta við aðra starfsmenn félagsins. Ég tel að Benitez sé frábær þjálfari og hann gæti gert það gott á Ítalíu," sagði Aquilani.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×