Ekki lúxusferðalög 6. janúar 2010 22:44 Sigrún Elsa. Mynd/Haraldur Jónasson
Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur, segir að hún hafi í stöfum sínum í þágu borgarbúa kappkostað að upplýsa almenning um starfsemi orkufyrirtækjanna eins mikið og vel og mögulegt er. Ferðir á vegum Orkuveitunnar séu ekki lúxusferðalög. Ferðalög fjögurra stjórnarmanna Orkuveitu Reykjavíkur á síðustu tveimur árum kostuðu samtals nærri sjö milljónir króna. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Kostnaðartölur síðustu tveggja ára, sem DV greinir frá í dag, og Stöð 2 fékk einnig frá Orkuveitunni, eru jafnframt fyrir ferðir á vegum dótturfélagsins REI. „Starfsemi REI er eingöngu á erlendum vettvangi og því ekki hjá því komist að stjórnarmenn fari í vinnuferðir til að sinna störfum sínum. Ég hef á kjörtímabilinu farið í tvær slíkar ferðir," segir Sigrún Elsa í tilkynningu þar sem hún mótmælir því að í frétt Stöðvar 2 sé látið að því liggja að um einhverskonar lúxusferðalög eða heimsreisur á kostnað almennings sé að ræða. Svo sé ekki. „Ferð minni til Asíu og Afríku, sem var sú kostnaðarsamasta, var gerð ítarleg skil, að mínu frumkvæði, í tveggja síðna viðtali í 24 stundum skömmu eftir að henni lauk. Þar var fjallað um starfsemi fyrirtækisins sem fram að því hafði verið lítt skýrð fyrir almenningi, segir borgarfulltrúinn. Sigrún Elsa segir að hún hafi reynt að halda störfum sínum í þágu borgarinnar eins opinberum og kostur er á. Hún hafi reynt að upplýsa almenning um starfsemi orkufyrirtækjanna. „Þannig tel ég óvíst að aðrir borgarfulltrúar hafi birt jafnmargar greinar og ég um starfssemi þessara fyrirtækja eða átt jafn ríkan þátt í að vafasöm áform um viðskipti með eigur almennings urðu opinber. Það hef ég gert með því að kynna mér af vandvirkni þá starfsemi sem mér hefur verið trúað fyrir. Ég vil þó taka fram að ég sá hvorki um skipulag þeirra ferða sem um ræðir né bókanir,“ segir Sigrún Elsa og hvetur fólk til að lesa greinar hennar um Orkuveituna og REI á heimasíðu sinni, sigrunelsa.is.
Tengdar fréttir Utanlandsferðin kostaði árslaun verkamanns Ein utanlandsferð Sigrúnar Elsu Smáradóttur borgarfulltrúa til Asíu og Afríku kostaði árslaun verkamanns. Hnattreisur fjögurra stjórnarmanna Orkuveitu Reykjavíkur á síðustu tveimur árum kostuðu samtals nærri sjö milljónir króna. 6. janúar 2010 18:38 Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Sjá meira
Utanlandsferðin kostaði árslaun verkamanns Ein utanlandsferð Sigrúnar Elsu Smáradóttur borgarfulltrúa til Asíu og Afríku kostaði árslaun verkamanns. Hnattreisur fjögurra stjórnarmanna Orkuveitu Reykjavíkur á síðustu tveimur árum kostuðu samtals nærri sjö milljónir króna. 6. janúar 2010 18:38