Utanlandsferðin kostaði árslaun verkamanns 6. janúar 2010 18:38
Ein utanlandsferð Sigrúnar Elsu Smáradóttur borgarfulltrúa til Asíu og Afríku kostaði árslaun verkamanns. Hnattreisur fjögurra stjórnarmanna Orkuveitu Reykjavíkur á síðustu tveimur árum kostuðu samtals nærri sjö milljónir króna.Fulltrúar almennings í stjórn Orkuveitunnar láta sér ekki nægja rútuferðir upp á Hellisheiði til að kynna sér jarðhitasvæði og fleira heldur ferðast til landa hinumegin á hnettinum. Kostnaðartölur síðustu tveggja ára, sem DV greinir frá í dag, og Stöð 2 fékk einnig frá Orkuveitunni, eru jafnframt fyrir ferðir á vegum dótturfélagsins REI.Stjórnarformaður Orkuveitunnar, Guðlaugur Sverrisson, fór þó bara til Oslóar og Stokkhólms fyrir 160 þúsund krónur en bætti um betur með Japansreisu og Lundúnaför sem kostuðu samtals rúmlega eina milljón króna.Kjartan Magnússon heimsótti bæði Asíu og Afríku, flaug til Jemen á Arabíuskaganum og síðan yfir Rauðahafið til Djíbútí og Eþíópíu. Reikningurinn 840 þúsund krónur. Svo heimsótti hann bæði Ameríku og Austur-Evrópu, fór til Kaliforníu og Slóvakíu fyrir 700 þúsund krónur.Ásta Þorleifsdóttir fór með Kjartani til Jemen, Djíbútí og Eþíópíu. Reikningurinn vegna Ástu var nærri 1,1 milljón króna, 250 þúsund krónum hærri en kostnaðurinn vegna Kjartans, sem Ásta segir að hljóti að vera bókhaldsvilla. Hún fór líka til Austur-Evrópu, til Búdapest, en sú för kostaði 260 þúsund krónur.Ekkert toppar þó Afríku- og Asíuför Sigrúnar Elsu Smáradóttur en hún fór til Filippseyja, Indónesíu og Djíbútí að kynna sér virkjanasvæði. Reikningurinn 1.695 þúsund krónur, sem þá voru árslaun verkamanns, samkvæmt launatöxtum. Sigrún Elsa fór líka á fund til Kaliforníu fyrir 465 þúsund krónur. DV hefur eftir henni í dag að ferðirnar hafi verið gagnlegar og peningunum vel varið.
Mest lesið Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Innlent Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Innlent Fleiri fréttir Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Sjá meira