Sænska ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt útgönguspám Heimir Már Pétursson skrifar 19. september 2010 18:50
Kjörstöðum í Svíþjóð var lokað fyrir hálftíma og virðist sænska ríkisstjórnin ætla að halda velli samkvæmt útgönguspá. Samkvæmt henni fær kosningabandalag mið- og hægri flokka 49,1 prósent atkvæða og bandalag vinstriflokka 45,1 prósent. Sænskir demókratar fá menn á þing, með 4,6 prósent atkvæða. Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra leiðir bandalag fjögurra mið- og hægriflokka í Svíþjóð sem útlit er fyrir að haldi meirihluta sínum á sænska þinginu í kosningum sem fram fara í landinu í dag. Hann var enda rólegheitin uppmáluð þegar hann gekk um miðborg Stokkhólms í dag og gaf kjósendum blóm. Skattalækkanir stjórnar Reinfeldt's hafa mælst vel fyrir og almennt stendur efnhagur Svíþjóðar vel á sama tíma og fjölmargar þjóðir Evrópu berjast við samdrátt og mikinn halla á fjárlögum. Rauð-græna bandalaginu, sem er bandalag vinstriflokka og græningja undir forystu Monu Sahlin leiðtoga jafnaðarmanna, hefur ekki náð að heilla meirihluta kjósenda til sín. En Sahlin var þó vongóð þegar hún mætti á kjörstað í dag. Síðust kannanir benda til að stjórnarflokkarnir fái 183 af 349 þingmönnum á sænska þinginu en rauð-grænabandalagið fái 66 þingmenn. Þá benda nýjustu kannanir til þess að nýjum flokki, Sænskum demókrötum, takist að komast yfir fjögurra prósenta múrinn sem þarf að kljúfa til að ná manni á þing. Flokknum er nú spáð 5,9 prósenta fylgi og tuttugu og einum manni á þing. En flokkurinn berst aðallega gegn veru innflytjenda í Svíþjóð sem hann segir ógna sænska velferðarkerfinu. Um 14 prósent íbúa Svíþjóðar eru innflytjendur. Ef bandalag Reinfeldts vinnur kosningarnar nú, yrði það í fyrsta skipti frá því á þriðja áratugnum sem leitoga mið- og hægriflokka tekst að vinna meirihluta á þingi eftir að hafa setið við völd í heilt kjörtímabil. Yfir tvær milljónir manna kusu utan kjörstaðar og hafa utankjörfundaratkvæði aldrei verið fleiri. Ef hvorugu bandalaginu tekst að vinna hreinan meirihluta gætu þessi atkvæði ráðið úrslitum en þau verða ekki að fullu talin fyrr en á þriðjudag.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Sjá meira