Love Parade: Tuttugasta ungmennið látið 27. júlí 2010 23:14 Skipuleggjendur göngunnar settu í gær upp skilti þar sem slysið varð. „Við erum miður okkar. Við syrgjum með ættingjum fórnarlamba og hugsum til þeirra sem eru í læknismeðferð.“ Við hliðina skrifar maður: „Hverjum datt í hug að láta 1,4 milljónir manna troðast í gegnum 16 metra breið göng?“ Mynd/AFP
Þrýst er á að borgarstjóri Duisburg, Adolf Sauerland, segi af sér vegna harmleiksins á Love Parade-göngunni um helgina. Tuttugasta ungmennið, 21 árs gömul þýsk kona, lést af meiðslum sínum í nótt. Alls slösuðust ríflega 500 manns. Um 1,4 milljónir manna mættu á hátíðina, sem hafði þó aðeins leyfi fyrir 250 þúsund manns. Fregnir herma að borgarstjórinn og skipuleggjendur hafi látið áhyggjur vegna fjölda gesta sem vind um eyru þjóta. Lögregluyfirvöld segja harmleikinn ekki sér að kenna vegna lélegrar gæslu. Formaður félags þýskra lögreglumanna, Rainer Wendt, sendi skipuleggjendum tóninn í dag. „Það er hneyksli að þeir reyni að losna undan ábyrgð og kenna lögreglunni um. Ég vorkenni einnig Adolf Sauerland borgarstjóra og ber virðingu fyrir honum en hann ætti að segja strax af sér." Öryggisfulltrúi sem tók aðstæður út fyrir hátíðina segir að borgaryfirvöld hafi vitað að gangnamunninn þar sem troðningurinn varð væri hættulegur. Hann sakar embættismenn um að koma í veg fyrir að hann myndi taka út aðstæður þar. Skipuleggjendur göngunnar hafa tilkynnt að hún verði aldrei haldin aftur vegna virðingar við hina látnu.
Tengdar fréttir Síðasta Love Parade gangan Í ljós hörmunganna í Love Parade göngunni í Duisburg hafa skipuleggjendur hátíðarinnar ákveðið að halda gönguna ekki aftur. 19 létust og 340 slösuðust þegar múgæsing greip um sig í undirgöngum sem lágu að hátíðarsvæðinu. 25. júlí 2010 15:07 Harmleikurinn í Duisburg - lögreglan varaði skipuleggjendur við Að minnsta kosti 19 eru látnir og yfir 340 slasaðir eftir að stærsta danspartý í heimi breyttist í harmleik. Forseti Þýskalands hefur krafist rannsóknar á orsökum slyssins. Gestir á Love Parade eða Gleðgöngunni í Duisburg þurftu margir hverjir áfallahjálp eftir að hafa horft á fólk troðast undir og láta lífið. 25. júlí 2010 14:32 Love Parade: Öll skjöl skipuleggjenda gerð upptæk Rannsókn er hafin á aðdraganda harmleiksins á Love Parade-göngunni í Duisburg í Þýskalandi á laugardag. Öll skjöl aðstandenda göngunnar voru gerð upptæk í dag. Angela Merkel kanslari segir að rannsóknin verði mjög nákvæm. 26. júlí 2010 17:43 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira
Síðasta Love Parade gangan Í ljós hörmunganna í Love Parade göngunni í Duisburg hafa skipuleggjendur hátíðarinnar ákveðið að halda gönguna ekki aftur. 19 létust og 340 slösuðust þegar múgæsing greip um sig í undirgöngum sem lágu að hátíðarsvæðinu. 25. júlí 2010 15:07
Harmleikurinn í Duisburg - lögreglan varaði skipuleggjendur við Að minnsta kosti 19 eru látnir og yfir 340 slasaðir eftir að stærsta danspartý í heimi breyttist í harmleik. Forseti Þýskalands hefur krafist rannsóknar á orsökum slyssins. Gestir á Love Parade eða Gleðgöngunni í Duisburg þurftu margir hverjir áfallahjálp eftir að hafa horft á fólk troðast undir og láta lífið. 25. júlí 2010 14:32
Love Parade: Öll skjöl skipuleggjenda gerð upptæk Rannsókn er hafin á aðdraganda harmleiksins á Love Parade-göngunni í Duisburg í Þýskalandi á laugardag. Öll skjöl aðstandenda göngunnar voru gerð upptæk í dag. Angela Merkel kanslari segir að rannsóknin verði mjög nákvæm. 26. júlí 2010 17:43