Húsaþyrping risin á Hellnum 17. maí 2010 05:00 Húsin eru flutt inn frá Noregi og minna frekar á gömul hús í eldri kaupstöðum landsins en á hefðbundin sumarhús íslensk.Fréttablaðið/Stefán
Tíu hús eru seld í nýrri húsaþyrpingu sem risin er á Hellnum. Þegar hafa tólf hús verið reist en grunnar hafa verið lagðir að sautján húsum og verður lokið við að byggja þau í sumar, að sögn Búa Kristjánssonar verkefnastjóra framkvæmdanna. Búi segir norska fjárfesta hafa keypt húsin haustið 2008, skömmu fyrir hrun. Þau voru þá komin í eigu Landsbankans sem hafði eignast þau eftir gjaldþrot fyrri eigenda. Uppi voru um miðjan áratuginn áform um að reisa á Hellnum 200 íbúðahúsa þorp, frístundabyggð sem átti að heita „Plássið undir jökli,“ og áttu þar samkvæmt lýsingum að vera lista- og handverksgallerí, verslanir og hótel, allt sem vera þyrfti til staðar í „íbúðarvænu þorpi“. Að sögn Búa eru slíkar stórframkvæmdir ekki á dagskrá nú og munaði meira að segja litlu að eigendurnir hættu við að ljúka við húsin í ljósi slæmra efnahagsaðstæðna. Skriður komst svo á málin síðasta vor og var afráðið að ljúka við þau sautján hús sem hafist hafði verið handa við. Síðasta haust kom svo kippur í sölu húsanna sem hafa verið seld á verðbilinu 12 til 16 milljónir króna eftir stærð. „Það er bara þokkalegur áhugi á þessu,“ segir Búi sem segir tvo til þrjá vinna að staðaldri við framkvæmdir og frágang við húsin en allt að sjö til átta vinni þarna þegar flestir séu á svæðinu. - sbt
Mest lesið Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Sjá meira