Innlent

Hefur ekki kært niðurstöðu skólans

bifröst Jón Halldór Guðmundsson hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann hyggist kæra niðurstöðu Háskólans á Bifröst til menntamálaráðuneytisins.
Fréttablaðið/Vilhelm
bifröst Jón Halldór Guðmundsson hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann hyggist kæra niðurstöðu Háskólans á Bifröst til menntamálaráðuneytisins. Fréttablaðið/Vilhelm

Lögfræðingur sem uppvís varð að ritstuldi í meistararitgerð sinni er enn sagður hafa lokið meistaranámi við Háskólann á Bifröst á vef fyrirtækis hans þrátt fyrir að háskólinn hafi fellt meistaragráðuna úr gildi í janúar.

„Það er enn verið að skoða málið,“ segir Jón Halldór Guðmundsson. Hann segir fullyrðingu á vef fyrirtækisins ekki beinlínis ranga. „Ég er búinn að ljúka meistaranáminu, ég er viðskiptalögfræðingur og þetta hefur engin áhrif á mitt starf.“

Hann segist enn ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann hyggist kæra niðurstöðu háskólans til menntamálaráðuneytisins.

Í samtali við Fréttablaðið í janúar hafnaði hann því alfarið að hafa stundað ritstuld. Hann rekur fyrirtækið Skattar – ráðgjöf og aðstoð, þar sem upplýsingar um menntun hans koma fram.

Ágúst Einarsson, rektor við Háskólann á Bifröst, segir málinu lokið af hálfu skólans, meistaragráðan hafi þegar verið felld úr gildi og því ekki eðlilegt að Jón Halldór segist vera með meistaragráðu frá skólanum.

Sérfræðingar skólans, sem og utanaðkomandi sérfræðingur, komust að þeirri niðurstöðu að Jón Halldór hafi „óumdeilanlega“ lagt stund á ritstuld í meistararitgerð sinni, gegn neitun Jóns. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×