Enski boltinn

Tímabilið gæti verið búið hjá Essien

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Chelsea hefur verið án Michael Essien síðan í janúar og það er ekki víst að miðjumaðurinn sterki snúi aftur á völlinn á þessari leiktíð.

Hann meiddist illa á hné á æfingu með Gana fyrir Afríkukeppnina. Meiðslin hafa reynst erfið viðureignar og eru menn sagðir vera orðnir svartsýnir á að hann komist aftur á völlinn í vetur.

Essien er staddur í Frakklandi ásamt Ashley Cole í endurhæfingu.

Spili Essien ekki meira verður það mikið áfall fyrir Chelsea enda hefur Essien verið einn besti maður liðsins síðustu ár.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×