Smíða reiknivél vegna gengisdómsins 29. júní 2010 04:00 Ingólfur H. Ingólfsson, stjórnarformaður Sparnaðar. „
Frá því dómur Hæstaréttar féll hefur umræða tengd gengistryggðum bílalánasamningum verið mjög ruglingsleg. Við ákváðum því að smíða reiknivél svo fólk geti séð svart á hvítu hvaða áhrif þær leiðir sem ræddar hafa verið hafa á lán fólks," segir Ingólfur H. Ingólfsson, stjórnarformaður ráðgjafarfyrirtækisins Sparnaðar. Tæpur hálfur mánuður er síðan dómur Hæstaréttar féll þar sem fram kemur að óheimilt hafi verið að tengja bílalán í krónum við erlenda myntkörfu. Margir hafa gagnrýnt fjármögnunarfyrirtækin fyrir gengistrygginguna, sem bönnuð hefur verið með lögum frá því Alþingi samþykkti lög um vexti og verðtryggingu árið 2001. Lánin bera á bilinu tveggja til þriggja prósenta vexti að viðbættu álagi. Á meðal háværustu gagnrýnenda eru Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, og Már Guðmundsson seðlabankastjóri, sem báðir segja að hagstæðustu vextir Seðlabankans eigi að taka við af gengislánunum. Forsvarsmenn fjármögnunarfyrirtækjanna segja erfitt að finna viðmiðun við útreikninga á gengistryggðum lánasamningum og hafa krafið stjórnvöld um að grípa í taumana þar til Hæstiréttur dæmir í sambærilegum málum sem gætu skýrt hvert framhaldið verður. Ingólfur segir stjórnvöld hafa flækt málið frekar en hitt og því hafi fyrirtæki hans ákveðið að stíga fram á sviðið með reiknivél sem lántakendur geta nýtt til að reikna út áhrifin af þeim mismunandi leiðum sem rædd hafa verið síðasta hálfan mánuðinn. „Þetta er flókið mál en alveg mögulegt," segir Árni Gunnar Vigfússon, ráðgjafi hjá Sparnaði. Hann segir fjármálaverkfræðing hafa unnið sleitulítið að smíði reiknivélarinnar frá því á miðvikudag í síðustu viku. Hann segir fjármögnunarfyrirtækin og bankana eiga að geta búið til sambærilega vél, þau hafi sérfræðinga í vinnu til þess. Fyrirtækið er nú langt komið með smíði reiknivélar sem nota má til að reikna út áhrif mismunandi leiða á gengistryggð íbúðalán. Í reiknivél Sparnaðar má sjá hver staða gengistryggðra bílalána er í dag og skoða hver áhrifin verða við að samningsvextir eru látnir standa eða hvort verðtryggðir vextir Seðlabankans eða óverðtryggðir taka við. Útreikningarnir eru eingöngu til viðmiðunar og umhugsunar fyrir fólk til að gera sér grein fyrir stöðunni. Netverjar sem áhuga hafa á að skoða áhrif mismunandi leiða á gengistryggð lán sín verða að skrá sig á heimasíðu Sparnaðar áður en þeir geta skoðað reiknivélina. Svo mikill heimsóknafjöldi var á heimasíðu fyrirtækisins í gær að tölvukerfi þess hrundi, að sögn Ingólfs. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Sjá meira