Innlent

Útlán dragast saman milli ára

Íbúðalánasjóður lánaði 2,8 milljarða króna í júlí. fréttablaðið/gva
Íbúðalánasjóður lánaði 2,8 milljarða króna í júlí. fréttablaðið/gva
Útlán Íbúðalánasjóðs hafa dregist saman um fimm milljarða það sem af er ári miðað við sama tímabil í fyrra. Þá hefur vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 1,3 prósent milli ára.

Samtals námu útlánin fyrstu sjö mánuði ársins tæpum 14,8 milljörðum en í fyrra voru það 19,9 milljarðar. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins.

Heildarútlán í júlí voru tæpir 2,8 milljarðar og voru 1,8 milljarðar vegna almennra lána. Meðalútlán voru 9,9 milljónir króna.

Lækkun á vísitölu íbúðaverðs er tilkomin vegna átta prósenta lækkunar á vísitölu fyrir sérbýli, en vísitala fyrir fjölbýli lækkaði um tæpt prósent. Þá var heildarvelta íbúðabréfa 34,2 milljarðar króna í júlí. Það sem af er ári hefur hún numið 374,4 milljörðum króna, en var 529,9 milljarðar á sama tímabili í fyrra.

Greiðslur sjóðsins voru rúmlega 352 milljónir króna í júlí vegna afborgana hús- og húsnæðisbréfa. Uppgreiðslur lána voru rúmir 2,8 milljarðar. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×