Ferguson: Ég er búinn að vera að biðja um vetrarfrí í 30 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2010 11:00 Sir Alex Ferguson. Mynd/Getty Images
Sir Alex Ferguson kennir enska knattspyrnusambandinu um hversu illa enska landsliðinu gekk á HM í Suður-Afríku þar sem að leikmenn liðsins töpuðu svo mikið á því að fá ekkert vetrarfrí á tímabilinu. Ferguson segir leikmenn enska liðsins hafa verið alveg búnir á því og því hafi alltaf verið ljóst að liðið myndi ekki ná neinum árangri á Hm í Suður-Afríku. Þrjár af þeim þjóðum sem komust í undanúrslitin, Þýskaland, Holland og heimsmeistarar Spánverja, hafa öll vetrarfrí í sínum deildum. Ferguson segir að enska landsliðið muni ekki ná árangri fyrr en enska úrvalsdeildin taki einnig upp vetrarfrí. „Enska knattspyrnusambandið þarf að gefa ensku þjóðinni bestan möguleika á að ná árangri á HM," sagði Sir Alex Ferguson. „Þetta hefur samt alltaf snúist um þarfir sjónvarpsins að vera með leiki í hverri viku. Hugmyndin um vetrarfrí hefur því alltaf verið kæfð í fæðingu. Ég byrjaði að tala um vetrarfrí fyrir 30 árum í Skotlandi og hef haldið því áfram síðan ég kom til Englands," sagði Ferguson. „Það hefur ekkert gerst í þessum málum en enska knattspyrnusambandið þarf að fara átta sig á því að með núverandi fyrirkomulagi þá er verið að vinna á móti möguleikum enska landsliðsins á HM," sagði Alex Ferguson og bendir jafnfram á Þýskaland. „Það er mikið álag á Englandi. Í flestum desember-mánuðum þá spilum við átta til níu leiki og það er yfir versta tíma ársins hvað varðar veður og vallaraðstæður," sagði Ferguson. „Þýskaland tekur alltaf sitt mánaðarlanga frí í janúar og þeir standa sig alltaf betur á HM en allir búast við," sagði Ferguson.
Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Mun Conte taka við Manchester United? Sport Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Sjá meira