Jarðhiti annar allri orkuþörf landsins 22. febrúar 2010 05:00 nesjavellir Sigurður Ingi telur mikla möguleika liggja í ferðaþjónustu tengdri orkuframleiðslu. Sérstaða þjóðarinnar í orkumálum veki víða athygli.fréttablaðið/gva
Framleiðsla á rafmagni með jarðhita hefur aukist mikið undanfarin ár og nú er svo komið að fræðilega væri hægt að anna allri almennri orkuþörf landsins með rafmagni þannig framleiddu. Þetta kom fram í erindi Sigurðar Inga Friðleifssonar, framkvæmdastjóra Orkuseturs, á aðalfundi Samorku á föstudag. Alls eru framleiddar um 17 þúsund gígavattsstundir af orku hér á landi. Af þeim eru 4 þúsund framleiddar með jarðhita sem annar allri almennri orkunotkun á landinu. Sigurður Ingi sagði að ef kynda þyrfti hús hér á landi með olíu, líkt og víða tíðkast, þyrfti að flytja inn 800 þúsund tonn árlega, með um 50 milljarða kostnaði. Þá sparast um 2,5 milljónir tonna af útblæstri gróðurhúsalofttegunda,við að hita húsin líkt og gert er hér. Til samanburðar má nefna að losun frá öllum vegasamgöngum er um 900 þúsund tonn. Ísland stendur öðrum löndum framar í þessum efnum. Sigurður Ingi tók sem dæmi að í Hollandi eru aðeins framleidd tæplega 9 þúsund gígavattsstundir af grænni orku. Til þessarar sérstöðu landsins gleymist oft að líta þegar kemur að viðræðum við Evrópusambandið. Því sé mikill akkur og tölfræðilegur fengur að fá land sem framleiðir jafn mikið af grænni orku. „Eini mælikvarðinn á stöðu þjóða í raforkuframleiðslu er græn orka,“ sagði Sigurður Ingi. Engin þjóð muni komast undan því að skipta á endanum yfir í græna orku. Það þýði mikil fjárútlát hjá öðrum þjóðum vegna óhjákvæmilegra orkuskipta, fjárútlát sem Íslendingar losni við. Sigurður Ingi benti þó á að enn væri úrbóta þörf á ýmsum sviðum. Þannig kæmi enn um 20 prósent af orku hérlendis frá óendurnýjanlegum orkugjöfum. Á því þyrfti að taka. Þá hefur notkun heimila á gasi aukist undanfarin ár, úr tæpum 600 tonnum árið 1996 í rúmlega 1.000 tonn árið 2007. Það skýrist af útihiturum og gaseldavélum. „Það er eins og annar hver maður sé orðinn stjörnukokkur sem þurfi gaseldavél.“ Sigurður Ingi segir mikla möguleika í orkutengdri ferðaþjónustu. Hægt væri að búa til útsýnisferðir um virkjanir og ýmis fyrirtæki þeim tengdum. Sérstaða Íslands vekti eftirtekt í útlöndum og út á hana ætti að gera. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Innlent Breytingar í vændum á skrifstofu forseta Innlent Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Innlent Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Erlent Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir Innlent „Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Innlent Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Erlent Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Erlent Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Erlent Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Erlent Fleiri fréttir Grafalvarleg staða í Danmörku, trampólínlægð og hundaflaut Viðvörunarstig hækkað: Auknar líkur á gosi Refsing fyrir að nauðga þroskaskertum manni milduð Breytingar í vændum á skrifstofu forseta Stærðarinnar grjót féll á fjölfarinn veg Bein útsending: Farið yfir það nýjasta í krabbameinsrannsóknum „Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Skæð fuglaflensa greindist á Norðurlandi Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Þingmenn ræða stjórnlausa veðmálastarfsemi: Íslendingar Evrópumeistarar Stórt framfaraskref að færa Blóðbankann í Kringluna Austurstræti orðið að göngugötu Íbúar Ártúnsholts hrósa sigri gegn borginni - í bili Fyrsta trampólínlægðin væntanleg á morgun Dóttirin fær einungis að mæta einu sinni í viku í frístund Drónar í Danaveldi og Blóðbankinn opnar í Kringlunni „Skoðun mín skiptir ekki máli“ Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir 3,2 stiga skjálfti í Mýrdalsjökli Óskaði aðstoðar með gríðarstóran hníf Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Enska verði orðin ráðandi í atvinnulífi um miðja öld Heiðra Íslendinga með því að gera 17. júní að fánadegi Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Skrítið að vita af ósprunginni handsprengju í næstu götu Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Löng bið Haraldar, umdeild kynjafræði og íslenska í útrýmingarhættu Borgin leggur bílstjórum línurnar Rafmagn aftur komið á í öllum hverfum Sjá meira