Innlent

Undrast hve langan tíma Svandís tók til lýsa sig vanhæfa

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.

Ráðamenn Ölfuss undrast að nærri hálft ár skyldi líða frá því þeir sendu inn aðalskipulag sveitarfélagsins til staðfestingar þar til umhverfisráðherra lýsti sig vanhæfan í málinu. Þeir segja að þetta muni meðal annars tefja tvöföldun Suðurlandsvegar.

Það var í byrjun aprílmánaðar sem Sveitarfélagið Ölfus sendi breytingar á aðalskipulagi til afgreiðslu Skipulagsstofnunar og staðfestingar ráðherra, en það fjallar meðal annars um Bitruvirkjun og tvöföldun Suðurlandsvegar. Í síðustu viku, nærri sex mánuðum síðar, lýsti Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sig vanhæfa til að fjalla um skipulagið vegna ummæla sem hún hafði áður látið falla um Bitruvirkjun.

Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Ölfuss, segir að Skipulagsstofnun hafi tvívegis gert athugasemdir, en eftir að þeim hafi verið svarað, hefði verið eðlilegt að umhverfisráðherra afgreiddi málið eigi síðar en í júnímánuði, enda telji hann að samkvæmt stjórnsýslulögum sé eðlilegur tími 30 dagar.

Sigurður segir það ekki aðeins sína skoðun heldur allra skipulagsfulltrúa á landinu að þessi ferill í umhverfisráðuneytinu sé orðinn allt of langur. Hann segir þegar ljóst að þessi dráttur muni tefja meðal annars breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss en einnig fleiri verkefni í sveitarfélaginu.

Sigríður Lára Ásbergsdóttir, forseti bæjarstjórnar Ölfuss, undrast það hve langan tíma það tók Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra að komast að því að hún væri vanhæf til fjalla um málið enda væru nokkur ár frá því ummæli hennar um Bitruvirkjun féllu.

Sveitarfélagið þarf hins vegar enn að bíða niðurstöðu því aðalskipulagið er nú komið inn á borð annars ráðherra, Guðbjarts Hannessonar, sem hefur verið settur umhverfisráðherra í málinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×