Í lagi að leggjast með óvininum Óli Tynes skrifar 7. október 2010 10:13 Mata Hari er líklega frægust tálkvenna.
Trúarbragðastofnun í Ísrael hefur gefið grænt ljós á að kvennjósnarar landsins leggist með óvinum þess. Tzomet stofnunin er helguð því hlutverki að túlka forn lög gyðinga með tilliti til breyttra aðstæðna dagsins í dag. Í úrskurði hennar segir að lagnaður geti verið: „Áhrifaríkt vopn." Í úrskurðinum er vísað til tálkvenna sem getið er í Biblíunni. Meðal þeirra er Yael eiginkona Hevers sem Biblían segir að hafi tælt herráðsforingja óvinanna inn í tjald sitt. Þar svæfði hún hann áður en hún rak tjaldhæl í gegnum gagnauga hans. Það má líka finna nýlegri dæmi. Leyniþjónustan Mossad sendi til dæmis njósnarann Cindy til Bretlands um árið til þess að tæla Mordechai Vanunu sem hafði ljóstrað um um kjarnorkuvopn Ísraels. Cindy sem síðar var upplýst að heitir Cheryl Bentov taldi Vanunu á að fara með sér í frí til Rómar. Þar tóku aðrir útsendarar Mossad við, rændu honum og fluttu til Ísraels. Þar var hann dæmdur til langrar fangelsisvistar. Í úrskurði Tzomet segir að áhersla skuli lögð á að senda ógiftar konur til slíkra verka. Ef nauðsynlegt reynist að senda gifta konu er ráðlagt að eiginmaður hennar skilji við hana áður. Með þeim skilmálum þó að hann eigi rétt á að kvænast henni aftur að lagnaði loknum.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira