Innlent

Tamíl Tígrar í íslensku fangelsi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Páll Winkel segir fjölbreyttan hóp manna hafi afplánað dóm á Íslandi. Mynd/ GVA.
Páll Winkel segir fjölbreyttan hóp manna hafi afplánað dóm á Íslandi. Mynd/ GVA.
Fjöldi erlendra ríkisborgara sem afplánar fangelsisdóma í íslenskum fangelsum hefur aukist griðarlega að undanförnu. Af þeim 319 sem afplánuðu dóm í íslenskum fangelsum á Íslandi í fyrra voru 67 útlendingar. Hlutfallið er því um 21%. Árið 2000 afplánuðu hins vegar 313 fangar í íslenskum fangelsum en þá var fjöldi erlendra ríkisborgara 7. Hlutfallið þá var því um 2,2%. Talan tekur til þeirra fanga sem luku afplánun á árinu eða voru í fangelsi í lok þess.

Pólverjar og Litháar eru fjölmennasti hópur erlendra ríkisborgara sem eru vistaðir í íslenskum fangelsum. Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir þó að fangarnir komi mun víðar að. „Það er ekki langt síðan að við vorum með Tamil Tígra," segir Páll Winkel. Hann segir að það geti skapað vandamál í sambandi við tjáskipti að vera með svo fjölbreyttan hóp. Margir þessara erlendu fanga tali bara eigið tungumál. Túlkaþjónustan sé dýr en þó ekki stóra upphæðin í öllu samhenginu.

Páll telur að helsta ástæðan fyrir þessari aukningu á fjölda erlendra ríkisborgara í íslenskum fangelsum sé aukin alþjóðavæðing og fólk að ferðast á milli landa. „Lögreglan er búin að vera öflug í því að upplýsa stór mál. Síðan náttúrlega hefur þessi gengjamyndun aukið mjög mikið hlut erlendra fanga," segir Páll. Hann bendir á að lögreglan hafi verið að taka pólsk og litháísk gengi fyrir innbrot og líkamsárásir. „Í litlu samfélagi er þetta fljótt að telja," segir Páll.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×