Stjórnarliðar tókust hart á 24. nóvember 2010 18:56
Ósætti órólegu deildarinnar í Vinstri grænum við ríkisstjórnina hefur síst minnkað eftir flokksráðsfund flokksins um helgina. Stjórnarliðar tókust hart á um efnahagsmál á Alþingi í dag. Tekist var á um nokkur grundvallarmál á flokksráðsþingi Vinstri grænna um síðast liðna helgi. Hluti flokksráðsins sem kenndur er við óróleikadeild flokksins varð þar undir í atkvæðagreiðslu um tillögur í Evrópumálum, en þar með er ekki sagt að vandræði ríkisstjórnarinnar með þau mál séu úr sögunni. Víst er að deilt verði um alla styrki sambandsins sem ráðherrar Samfylkingarinnar kunna að þiggja frá sambandinu og ásakanir um aðlögunarferli haldi áfram. „Almennt er það auðvitað þannig að ríkisstjórnin samþykkir þessi verkefni. Þannig að það kemur allt til umfjöllunar fyrst í ráðherranefnd um Evrópumál og síðan í sjálfri ríkisstjórninni. Þannig að við munum fara yfir það eftir því sem efni standa til í hverju tilviki," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Þá vakti athygli vakti að borin var fram tillaga í flokksráðinu um að fjárlagafrumvarpið yrði endurskoðað, en fyrir því fer formaður flokksins. Ögmundur Jónasson sem er ókrýndur leiðtogi óróleikadeildarinnar mælti með tillögunni um fjárlögin, sem verður að teljast sérstakt þar sem frumvarpið er afgreitt af ríkisstjórn.Gagnrýndi fjármálaráðherra Pirringurinn milli óróleikadeildarinnar og annarra stjórnarþingmanna sýndi sig á þingi í dag. Stjórnarliðinn Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar, hélt áfram að gagnrýna fjármálaráðherra og aðra í ríkisstjórninni fyrir að hlusta ekki á tillögur hennar í efnahagsmálum í stað þess að fylgja áætlun AGS. „Ein alvarlegustu mistökin voru að taka ekki strax á skuldavanda heimila og fyrirtækja eins og Framsóknarflokkurinn þrýsti á. Slík aðgerð hefði verið hraðvirk og tryggt bæði eftirspurn og sátt í samfélaginu," sagði Lilja.Ekki hægt að kenna AGS um stöðu mála En stjórnarliðinn í sæti formanns efnahags- og skattanefndar var ekki sáttur við málflutning samherja síns í stjórnarliðinu, og sagði Lilju ekki geta kennt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um stöðu mála. „Hvorki mun það vera svo að það að halda áfram að safna skuldum og forðast erfiðar ákvarðanir um niðurskurð eða hækka skatta frekar eins formaður viðskiptanefndar hefur lagt til, það mun ekki skapa hér hagvöxt. Það sem mun koma hjólum efnahagslífsins að stað er fjárfesting og ekki síst erlend fjárfesting," sagði Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar og þingmaður Samfylkingarinnar.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira