500 milljónum veitt til átaksverkefna í atvinnumálum í Reykjavík 5. júlí 2010 16:06
Borgarráð samþykkti tillögur nýs meirihluta borgarstjórnar að breytingum á framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar á aukafundi sínum rétt í þessu. Þær fela í sér breytta forgangsröðun þannig að 500 milljónum króna verður nú veitt í margvísleg mannaflsfrek verkefni víðs vegar um borgina. Samkvæmt mati Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar þýðir þetta að allt að 150 manns geti fengið vinnu til áramóta. Áðurnefndur hálfur milljarður sem annars hefði verið varið til uppkaupa á eignum bætist við framkvæmdir og viðhaldsverkefni sem þegar voru á áætlun auk 150 milljóna króna sem ætlaðar voru til sérstaks atvinnuátaks í samvinnu við Vinnumálastofnun. Alls verður framkvæmt á vegum Reykjavíkurborgar fyrir 6,5 milljarða í ár og eru framkvæmdir fyrirtækja borgarinnar þá ekki meðtalin. 250 milljónum króna verður varið í opin leiksvæði, græn svæði og endurgerð göngustíga. Nauðsynlegu viðhaldi í ýmsum skólum og leikskólum verður flýtt og sérstök áhersla verður lögð á framkvæmdir í Breiðholtshverfi. Samkvæmt tilkynningu frá borginni þá er rétt að taka fram að ekki er um viðbótarfjármagn að ræða heldur tilflutning verkefna innan framkvæmdaáætlunar. Meginbreytingin felst í því að lagt er til að áætlað fjármagn til kaupa á eignum í tengslum við skipulagsbreytingar verði nýtt í mannaflsfrekar framkvæmdir. Meðal verkefna sem ráðist verður í er endurgerð göngu- og hjólaleiða og leiksvæða, viðhald á húsum í eigu borgarinnar s.s. grunnskólum og leikskólum o.fl.
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Öll áhöfnin handtekin Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Fleiri fréttir Öll áhöfnin handtekin Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Sjá meira