Ballack: Ákvörðun Roman að ég ætti að fara Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. júní 2010 10:30 Michael Ballack í leik með Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Michael Ballack segir að það hafi verið ákvörðun Roman Abramovich, eiganda Chelsea, að bjóða honum ekki nýjan samning við félagið. Samningur Ballack við Chelsea rennur út í sumar og var greint frá því í gær að honum, ásamt Joe Cole og Juliano Belletti, yrði ekki boðinn nýr samningur. „Það var óheppilegt að við náðum ekki saman en ég verð nú loka þessu máli," sagði Ballack við enska fjölmiðla. „Ég hef vitað í þó nokkurn tíma að samningaviðræðum hefði verið hætt og ég verð nú að halda áfram og finna mér nýtt félag." „Það var þó alltaf fyrsti kostur minn að vera áfram hjá Chelsea enda var ég þar í fjögur frábær ár og ég naut hverrar mínútu. Það er enn minn fyrsti kostur í dag en þetta er ekki undir mér komið. Það var Roman sem tók þessa ákvörðun." Ballack verður ekki með þýska landsliðinu á HM í sumar vegna meiðsla en segir að hann hafi engan áhuga að slaka á með því að fara til Bandaríkjanna eða Dubai, eins og hann orðaði það sjálfur. „Ég vil vera áfram í Evrópu. Ég er stoltur af því að vera Þjóðverji og mér hefur alltaf liðið vel í Þýskalandi. Mér standa því til boða ýmsir kostir heima," sagði hann en Ballack hefur að undanförnu verið orðaður við Wolfsburg.
Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Sjá meira