Hvetja fólk í áhættuhóp til að láta kanna HIV smit Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar 19. janúar 2010 12:04 Haraldur Briem sóttvarnarlæknir. Mynd/ Hari.
Smitsjúkdómadeild Landspítalans hvetur til þess að fólk sem deilt hefur nálum eða stundað óábyrgt kynlíf undanfarin misseri láti athuga hvort það hafi smitast af HIV-veirunni. Sóttvarnarlæknir rannsakar hvort fjölgun HIV-smitaðra hér á landi megi hugsanlega rekja til einnar stúlku. Í fréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld var greint frá því að Landlæknisembættinu tókst ekki að koma lögum yfir unga HIV-smitaða konu sem grunur lék á að hefði smitað aðra með skeytingarlausri hegðun. Málið hófst árið 2007 en þá var nýgengi HIV smitaðra mjög mikið meðal sprautufíkla. Ótti vaknaði hjá starfsmönnum Landlæknisembættisins vegna þessa og beindist athyglin að ungu konunni. Reynt var að veita henni aðstoð á grundvelli sóttvarnarlaga en aðstoðinni hafnaði hún alfarið og fór málið fyrir héraðsdóm. Þar var úrskurðað um að konan hefði sinn rétt og ekki væri hægt að þvinga hana til að þiggja aðstoð heilbrigðisyfirvalda og fór hún sína leið. Sóttvarnarlæknir segir að rannsakað sé hvort fjölgun HIV-smitaðra hér á landi megi hugsanlega rekja til þessa máls. En í fyrra greindust þrettán manns með veiruna og var yngsta manneskja í þeim hópi aðeins sautján ára. Fimm úr hópi smitaðra voru fíkniefnaneytendur. Bergþóra Karlsdóttir hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild hvetur fólk sem hefur deilt nálum eða stunda óvarin kynmök með fólki í áhættuhóp að leita sér aðstoðar hið fyrsta. Það geti haft samband við göngudeild smitsjúkdómadeildar og farið í próf sér að kostnaðarlausu. Hún segir þróunina geigvænlega og harmar það að vopn í baráttunni gegn HIV hafi verið slegin úr höndum heilbrigðisstarfsmanna með dóminum árið 2007. Nú sé aðeins hægt að hvetja fólk til að nota smokinn og deila ekki nálum en slíkar ráðleggingar dugi þó oft skammt.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira