Erlent

Fangelsun Julians mótmælt víða um heim

Mótmæli í Ástralíu í gær.
Mótmæli í Ástralíu í gær.

Það voru haldin mótmæli víða um heim í dag til þess að krefjast þess að stofnandi WikiLeaks, Julian Assange, yrði látinn laus, en hann sætir gæsluvarðhaldi í Bretlandi vegna gruns um kynferðisbrot í Svíþjóð.

Þannig var mótmælt á Spáni, Perú, Argentínu, Hollandi og Kólumbíu í dag. Í gær var mótmælt í Ástralíu, heimalandi Julians.

Það var spænsk heimasíða sem hvatti til mótmælanna og fjöldi fólks hlýddi kallinu. Mótmælt var í fjölda spænskra borga auk þess sem til stendur að halda mótmæli í London, þar sem Julian er í haldi, á mánudaginn. Þá verður einnig mótmælt fyrir utan höfuðstöðvar ríkissaksóknara í Svíþjóð i næstu viku.

Julian hefur notið víðtæks stuðnings síðan hann var handtekinn. Kevin Rudd, utanríkisráðherra Ástralíu gagnrýndi handtökuna harðlega. Sama gerði forseti Brasilíu, Luiz Inacio Lula da Silva, í liðinni viku.

Þess má geta að Kristinn Hrafnsson, sem nú er einn aðaltalsmaður WikiLeaks, verður í viðtali við Egil Helgason í Silfri Egils í hádeginu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×