Erlent

Staðfestir lát leiðtoga sinna

Nouri Al Maliki
Nouri Al Maliki
Al Kaída-samtökin í Írak hafa staðfest að tveir helstu leiðtogar þeirra hafi fallið í árás bandarískra og íraskra hermanna um síðustu helgi. Samtökin segjast þó ætla að halda ótrauð áfram baráttunni: „Stríðið er enn í gangi, og úrslitin verða hinum trúhreinu í hag,“ segir í yfirlýsingu sem birt var á vefnum. Leiðtogar Íraksdeildar samtakanna, þeir Abu Omar al Baghdadi og Abu Ayyub al Masri, létu lífið þegar árás var gerð á hús skammt frá Tikrit skammt norður af Bagdad.- gb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×