Erlent

Ákvarðanir forseta útskýrðar

George W. Bush
George W. Bush fréttablaðið/AP
George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, sendir næsta haust frá sér sjálfsævisögulega bók, þar sem hann skýrir frá tildrögum og forsendum umdeildra ákvarðana sem hann tók á forsetaferli sínum.

Meðal annars verður fjallað um atburðina í kringum 11. september 2001, forsetakosningarnar árið 2000 og persónulegri mál, svo sem tengsl hans við fjölskyldu sína og ákvörðun hans um að hætta að drekka.

Bókin á að heita „Decision Points“ og kemur út 9. nóvember.- gb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×