Talibaninn og Gyðingarnir Óli Tynes skrifar 28. apríl 2010 15:43 James Jones öryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta.
Öryggisráðgjafi Baracks Obama Bandaríkjaforseta hefur beðið Gyðinga afsökunar á brandara sem hann sagði í ræðu sem hann flutti í Washington Instutute for Near East Policy. Sú stofnun fer með málefni Miðausturlanda og þar eru menn fremur hlynntir Ísrael. Í brandaranum sagði James Jones fyrrverandi hershöfðingi frá talibana sem staulaðist um eyðimörkina magnþrota af þreytu og vatnsskorti. Út við sjóndeildarhringinn sá hann einhvern kofa sem hann stefndi á. Kofinn reyndist vera verslun og eigandinn var Gyðingur. Talibaninn staulaðist inn og stundi upp; -Mig vantar vatn, gefðu mér vatn. Gyðingurinn svaraði; -Því miður á ég ekkert vatn. En viltu kaupa hálsbindi? Ég er með ágætis útsölu á hálsbindum. Talibaninn trylltist og jós skömmum yfir Gyðinginn. Kallaði hann öllum illum nöfnum. Gyðingurinn hlustaði rólegur á þetta. Þegar talibaninn hafði ausið úr skálum reiði sinnar sagði hann; -Mér þykir leitt að eiga ekkert vatn handa þér. Og ég fyrirgef þér skammirnar um mig og þjóð mína. -Þessvegna skal ég hjálpa þér. Ef þú gengur yfir hæðina þarna og heldur áfram fimm kílómetra þá kemur þú að veitingahúsi. Þeir eiga allt það vatn sem þú getur í þig látið. Talibaninn staulast af stað og hverfur yfir hæðina. Mörgum klukkustundum síðar staulast hann til baka, nær dauða en lífi. Og segir við Gyðinginn; -Bróðir þinn segir að ég komist ekki inn á veitingastaðinn nema vera með bindi.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira