Notts County meistari í ensku D-deildinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. apríl 2010 12:45 Steve Cotterill, til hægri, fagnar sigrinum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Notts County tryggði sér í gærkvöldi meistaratitilinn í ensku D-deildinni með 5-0 útisigri á Darlington sem var reyndar þegar fallið í ensku utandeildina fyrir leikinn. Liðið er nú með 89 stig á toppi deildarinnar, sjö stigum meira en Rochdale þegar tvær umferðir eru eftir. Tímabilið hefur verið skrautlegt hjá Notts County. Liðið var keypt af moldríkum peningamönnum frá miðausturlöndum sem ætluðu sér stóra hluti og réðu til að mynda Sven-Göran Eriksson sem yfirmann knattspyrnumála og sömdu við Sol Campbell. Campbell gafst reyndar upp eftir aðeins einn leik og er nú kominn til Arsenal. Eigendurnir gáfust svo líka upp og skömmu eftir að félagið var selt Peter Trembling fyrir lítinn pening hætti Eriksson hjá félaginu. Alls hafa fjórir knattspyrnustjórar stýrt liðinu á tímabilinu - Ian McParland, Hans Backe, Dave Kevan og nú síðast Steve Cotterill. Cotterill tók við Guðjóni Þórðarsyni hjá Stoke á sínum tíma en Guðjón var einmitt einnig knattspyrnustjóri Notts County tímabilið 2005-6. Notts County er sem kunnugt er elsta knattspyrnufélag heims en það var stofnað árið 1862. „Það var von okkar að vinna þennan titil. Þetta hefur ekki verið auðvelt ferli og leikmenn hafa verið fyrsta flokks," sagði Cotterill eftir leikinn í gær en liðið var fjórtán stigum frá toppliði deildarinnar þegar hann tók við stjórn þess í febrúar síðastliðnum. „Maður upplifir ekki svona lagað á hverjum degi. Þetta var frábært og ég er hæstánægður."
Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira