Innlent

Tveir slösuðust í bílveltu, loka þurfi þjóðveginum

Tveir menn slösuðust og voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri, eftir að bíll þeirra valt út af veginum á móts við bæinn Strjúpstaði í Húnavatnssýslu laust eftir miðnætti.

Bíllinn fór fyrst út af veginum og kastðist síðan upp á hann aftur þar sem hann hafnaði á hliðinni. Senda varð tækjabíl á vettvang til að ná mönnunum úr flakinu og var þjóðvegurinn lokaður um hríð á meðan björgunarmenn voru að athafna sig.

Fréttastofunni er ekki nánar kunnugt um líðan mannanna né orsakir slyssins.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×