Innlent

Kríuvarpið í Rifi líkist helst kirkjugarði

Sjófuglar sem nýta sandsíli til átu eiga erfitt uppdráttar á Snæfellsnesi.
Sjófuglar sem nýta sandsíli til átu eiga erfitt uppdráttar á Snæfellsnesi.
Of fáir kríuungar hafa komist á legg á stóru varpsvæðunum utarlega á Snæfellsnesi og gengur því á kríustofninn við Ísland. Þetta kemur fram í doktorsrannsókn sem Freydís Vigfúsdóttir hefur gert undir leiðsögn Tómasar G. Gunnarssonar vistfræðings, við Háskólasetur Snæfellsness. Stykkishólmspósturinn greinir frá þessu.

Haft er eftir Freydísi að dapurlegt sé um að litast í kríuvarpinu á Rifi, einu af stærstu kríuvörpum landsins, og að það líkist helst kirkjugarði.

Í rannsókninni er mæld tíðni fæðugjafar og reyndist hún einnig vera lág utarlega á Snæfellsnesi. Borið hefur við að foreldrar hafi gefið ungum sínum fiðrildi en aðalfæða kríunnar er sandsíli. Að sögn Freydísar er þetta sjötta árið í röð þar sem sjófuglar sem nýta sandsíli til átu eiga erfitt.

Viðkoma unga innarlega á Snæfellsnesi virðist þó hafa gengið betur samkvæmt rannsókninni en varpsvæðin eru það smá þar að þau hafa ekki úrslitaáhrif um viðhald stofnstærðarinnar í heildina litið.

Enginn fugl í heiminum ferðast jafnlanga leið á milli varp- og vetrarstöðva og krían. Tvisvar á ári flýgur hún um 15 þúsund kílómetra milli varpstöðva á norðurhjaranum suður að ísbreiðunum við Suðurskautslandið. - th




Fleiri fréttir

Sjá meira


×