Ganga ekki á bak orða sinna 9. júní 2010 02:00 Toomas Hendrik Ilves
Ákveðið hefur verið að Eistland taki upp evruna í byrjun næsta árs, þrátt fyrir vaxandi áhyggjur af framtíð evrunnar. Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins samþykktu þetta á fundi sínum í Brussel. „Auðvitað höfum við áhyggjur," segir Kalev Vapper, talsmaður eistnesku stjórnarinnar, þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær. „En við gáfum loforð okkar um að ganga í evrubandalagið, og getum ekki gengið á bak þeirra orða núna. Heiðarlegt fólk stendur við orð sín." Vapper segir Eista eigi að síður sannfærða um að evran ráði við erfiðleikana sem nú steðja að, sem meðal annars eru vegna ástandsins í Grikklandi. Eistland fékk aðild að Evrópusambandinu árið 2004, en hefur verið með mynt sína tengda evrunni allar götur síðan 1999. Aðildinni fylgir að evran verður mynt landsins um leið og öllum skilyrðum evrusvæðisins um ríkisskuldir, fjárlagahalla, verðbólgu og fleira er fullnægt. Upphaflega gerði Eistland sér vonir um að taka upp evruna árið 2007, en það hefur dregist vegna hárrar verðbólgu í Eistlandi. Samdráttur í Eistlandi í kjölfar heimskreppunnar 2008 varð hins vegar til þess að mjög dró úr verðbólgu í landinu, svo hún er nú komin vel niður fyrir viðmiðunarmörk evrusvæðisins.
Mest lesið Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent Hvar er Khamenei? Erlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Innlent Búast má við töluverðum dembum Veður Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Fleiri fréttir „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Segir vopnahlé í höfn Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Rýma sextán þorp vegna gróðurelda í Grikklandi Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Sjá meira