Sveiflaði kjöthnífi og heimtaði róandi lyf 8. apríl 2010 06:00 Maðurinn ógnaði saklausum, gömlum manni með hnífi. Mynd/ Pjetur. „
Hann sagði að hann vildi ekki drepa neinn en yrði að fá róandi lyf og mundi sætta sig við tvær töflur," segir Sigurður Viðar Viggósson sem vaknaði snemma í gærmorgun við að ungur fíkill, vopnaður hnífi, var kominn inn í herbergið hans í leit að lyfjum. Sigurður Viðar var í heimsókn hjá 84 ára gömlum föður sínum í fjölbýlishúsi aldraðra í Gullsmára í Kópavogi. „Ég hélt fyrst að við hefðum gleymt að læsa íbúðinni," segir Sigurður Viðar. Í raun hafði þjófurinn klifrað upp á svalir á þriðju hæð og komist inn um kviklæstar svaladyrnar. Hann náði sér í kjöthníf í eldhúsinu og rótaði í hirslum í íbúðinni. „Hann var að leita að lyfjum og kom inn í herbergið. Ég vaknaði, skildi ekkert hver þetta var og spurði hvað hann væri að gera. Hann sagðist vera með hníf en vildi ekki drepa neinn," segir Sigurður Viðar. Sigurður Viðar sagði manninum að koma sér út. Innbrotsþjófurinn hefði neitað að fara nema hann fengi tvær töflur og síðan hefði hann sagt: „Ég veit að þetta er blokk fyrir eldri borgara og þeir eru allir með lyf." Sigurður Viðar brást við með því að vefja úlpunni sinni utan um handlegginn og ráðast til atlögu. „Ég réðst á hann og tók af honum hnífinn." Hann segir að maðurinn hafi ekki sýnt mikla mótspyrnu heldur forðað sér. „Ég varð mest hissa þegar hann fór svo út á svalir og lét sig hverfa einhvern veginn niður þrjár hæðir. Hann sagði þegar hann fór yfir handriðið að ef ég hringdi í lögregluna mundi hann koma aftur og stela öllu því hann vissi hvar ég byggi," segir Sigurður Viðar, sem hringdi í lögregluna engu að síður. Hún kom á þremur bílum og fann manninn í grenndinni skömmu síðar. Sigurður Viðar býr í Noregi en kom til landsins í heimsókn til föður síns og fjölskyldu í fyrradag. „Ég er feginn að hafa verið til staðar hjá pabba þegar þetta gerðist," segir Sigurður Viðar en faðirinn svaf svefni hinna réttlátu meðan sonurinn glímdi við þjófinn. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Fleiri fréttir Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Sjá meira