Tópasmálið: „Hafi orðið mistök þá leiðréttum við þau“ 8. apríl 2010 13:44 Drengurinn fékk sér útrunnið Tópas og braut á sér tönnina. Mynd úr safni. „
Það er leiðinlegt ef þau keyptu útrunna vöru, en annað þarf að skoða þetta mál betur," segir Pétur Smárason, rekstrastjóri Snælandsvideo, en Vísir greindi frá því í morgun að 12 ára piltur braut í sér tönn eftir að hafa fengið sér Tópas úr versluninni sem reyndist löngu útrunnið. Faðir drengsins var ósáttur við viðbrögð verslunarinnar en Pétur segir að samskiptunum hafi ekki verið rétt lýst í grein Vísis. Hann segist hafa talað við móður drengsins en þau samskipti hafi endað með því að hann hafi sagst ætla að láta tryggingafélagið skoða málið. Þá segir hann að hún hafi krafðist þess að fyrirtækið færi með drenginn til tannlæknis. Eins og fram kom í fyrri fréttinni er drengurinn þroskahamlaður og því er það meiriháttar mál þegar hann fer til tannlæknis. Þá þarf að svæfa hann. Sjálfur sagði faðir drengsins að tannlæknir hefði gert við tvær tennur í drengnum og þá hafi kostnaðurinn verið um 150 þúsund krónur. „Ég var ekki með neinn dónaskap. Ég hef verið að láta vinna í þessu máli síðan við töluðum saman," segir Pétur sem útilokar ekki að þau hafi keypt útrunnið Tópas. Hann segir það koma fyrir að útrunnar vörur séu seldar í hvaða búð sem er. „Hafi orðið mistök, þá leiðréttum við þau," segir Pétur sem ætlar sér að komast til botns í málinu.
Tengdar fréttir Þroskahamlaður drengur braut tönn á löngu útrunnu Tópasi „Við keyptum tópaspakkann fyrir þremur dögum síðan,“ segir verkamaðurinn Sverrir Bergmann Egilsson en hann varð fyrir því óláni að kaupa útrunninn tópaspakka í versluninni Snælandsvídeo í Setbergi. Í ljós kom að pakkinn rann út í maí á síðasta ári. En það sem verra var, þá fékk tólf ára sonur Sverris sér tópas áður en þau uppgvötuðu að pakkinn væri útrunninn. 8. apríl 2010 11:18 Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira
Þroskahamlaður drengur braut tönn á löngu útrunnu Tópasi „Við keyptum tópaspakkann fyrir þremur dögum síðan,“ segir verkamaðurinn Sverrir Bergmann Egilsson en hann varð fyrir því óláni að kaupa útrunninn tópaspakka í versluninni Snælandsvídeo í Setbergi. Í ljós kom að pakkinn rann út í maí á síðasta ári. En það sem verra var, þá fékk tólf ára sonur Sverris sér tópas áður en þau uppgvötuðu að pakkinn væri útrunninn. 8. apríl 2010 11:18