Innlent

Stjórnarflokkarnir vilja tryggja tök hins opinbera í orkufyrirtækjum

Vilji er fyrir því innan stjórnarflokkanna að takmarka eignarhald einkaaðila í orkufyrirtækjum við þriðjungshlut. Unnið er að gagnaöflun í forsætisráðuneytinu vegna þess. Frumvarp um málið kynni að koma á haustiþingi.

Það var rétt fyrir Alþingiskosningarnar 2007 að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, ákvað að selja fimmtán prósenta hlut ríkisins í hitaveitu suðurnesja. Geysir Green Energy, sem var að miklu leyti í eigu FL group, keypti hlutinn fyrir stórfé. Upp úr því fór í gang mikil hringgekkja með þeirri niðurstöðu að kanadíska félagið Magma Energy á nú HS orku, með nýtingarrétti á auðlindum til 65 ára. Þetta hefur lengi verið mjög umdeilt.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið, og verið er að vinna um það frumvarp, að hámarksnýtingartími verði 40-50 ár. Ríkisstjórnin vill tryggja eign þjóðarinnar á auðlindum landsins í stjórnarskrá. Þá áréttaði hún um miðjan maí, að í sinni tíð yrði ekki hróflað við orkukfyrirtækjum á hendi ríkisins. Þar má helst nefna Landsvirkjun.

Bak við tjöldin er nú rætt um að setja lög um framtíðarskipan á eignarhaldi orkufyrirtækjanna. Þar er sérstaklega horft til norskra laga um að styrkja opinbert eignarhald. Einkaaðilar eigi ekki meira en þriðjung.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, og Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, nefndu þetta í grein á vefritinu Smugunni í vor.

Þingmenn Samfylkingarinnar munu margir vera sáttir við að fara norsku leiðina. Enn fremur hefur fréttastofan heimildir fyrir því, að gagnaöflun sé hafin í forsætisráðuneytinu vegna hennar. Þó sé ekki byrjað að semja frumvarp.

Vinstri-græn vilja vinda ofan af einkavæðingu HS orku. Fréttastofa hefur heyrt að þau vilji hafa ákvæði um nokkurra ára aðlögunartíma fyrir Magma til að þynna út hlut sinn í félaginu. Það hefur ekki fengist staðfest. Aftur á móti heyrist fréttastofu á Samfylkingarþingmönnum, að þar glími menn við orðinn hlut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×