Veittust að veitingamanni og hótuðu honum lífláti 2. júlí 2010 11:42 Davíð Steingrímsson.
Davíð Steingrímsson veitingamaður sem áður var kenndur við Vegas á Laugavegi lenti í því í morgun að tveir menn veittust að honum og hótuðu honum lífláti. Vegas hefur nú verið lokað í kjölfar banns við nektarsýningum og er Davíð nú í óðaönn við að standsetja nýjan stað í sama húsnæði sem á að heita"Ob-La-Di, Ob-La-Da" en á staðnum verður bítlatónlist í fyrirrúmi. Í morgun beið Davíð eftir iðnaðarmanni við inngang staðarins þegar tveir menn af erlendu bergi brotnir gengu að honum og vildu komast inn á staðinn. „Þeir vildu komast inn á staðinn en ég sagði þeim að það væri lokað," segir Davíð. „Þeir æstu sig strax mjög mikið og héldu því fram að þeir hefðu gleymt einhverri tösku hér í gær. Ég reyndi að segja þeim að það hlyti að hafa verið einhversstaðar annarsstaðar en þeir létu sér ekki segjast og reyndu að ryðjast framhjá mér." Davíð segist hafa náð að loka hurðinni og læsa og fóru þeir þá að sparka í hurðina og láta öllum illum látum en að sögn Davíðs voru þeir báðir ölvaðir. „Ég fór um staðinn og leitaði að þessari tösku en fann hana auðvitað ekki. Á meðan heyrði ég öskrin í þeim fyrir utan og hótuðu þeir meðal annars að drepa mig. Þá ákvað ég að hringja á lögregluna." Davíð fór síðan aftur út og reyndi að útskýra fyrir mönnunum að taskan væri ekki á staðnum. „Það hafði ekkert að segja, þeir byrjuðu að ögra mér, ýta við mér og hóta því að ég yrði tekinn af lífi á bjagaðri ensku." Á meðan á þessu gekk hafði nokkur hópur fólks staldrað við og fylgst með uppákomunni. „Þeir sögðust aftur og aftur ætla að koma síðar og drepa mig." Lögreglan kom á staðinn stuttu seinna og handtók mennina. „Lögreglumennirnir sögðu mér að þeir hafi þurft að hafa afskipti af þeim fyrr í morgun og þá spyr maður sig af hverju þeir eru ekki teknir úr umferð. Ætli það sé ekki búið að sleppa þeim aftur," segir Davíð að lokum.
Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Innlent Nýjustu tölur í Hafnarfirði Innlent Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Sjá meira