Enski boltinn

Markalaust hjá Liverpool og Fulham

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í dag.
Úr leik liðanna í dag.

Það verður seint sagt að leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar séu á skotskónum í dag því þriðja markalausa jafnteflið í röð er staðreynd.

Að þessu sinni voru það leikmenn Liverpool og Fulham sem mistókst að koma tuðrunni í netið.

Enn dvína því Meistaradeildarvonir Liverpool sem er í 6. sæti deildarinnar með 56 stig.

Liðið er þremur stigum á eftir Man. City sem er í fjórða sæti. Liverpool hefur leikið einum leik meira og City er að vinna sinn leik í dag sem stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×