Talin hafa kæft börnin með plastpoka 20. maí 2010 08:30 Börnin fundust látin á hóteli á Lloret de Mar sem er vinsæll ferðamannastaður í austurhluta Spánar. Móðir þeirra er talin hafa kæft börnin.
Móðir barnanna sem fundust látin á hótelherbergi á Spáni í fyrradag hefur verið handtekin og gert að sæta geðrannsókn. Eiginmaður hennar var fyrr í vikunni framseldur til Bretlands en hann er grunaður um barnaníð. Ellefu mánaða breskur drengur og fimm ára systir hans fundust látin í hótelherbergi á ferðamannstaðnum Lloret de Mar í austurhluta Spánar í fyrradag. Málið hefur vakið afar mikla athygli í Bretlandi og á Spáni - ekki síst fyrir þær sakir að faðir barnanna, hinn 45 ára gamli Martin Smith, var fyrr í vikunni framseldur frá Spáni til Bretlands. Hann er grunaður um að hafa níðst á þremur börnum á árunum 1995 til 2005. Alls eru ákæruliðirnir í þrettán liðum og hefur Martin verið eftirlýstur í um tvö ár. Hann var handtekinn í Barcelona fyrir hálfum mánuði. Allt lítur út fyrir að Martin hafi farið huldu höfði á Spáni undanfarna mánuði með eiginkonu sinni Lianne og börnunum tveimur. Seinna barn þeirra, drengurinn Daniel, kom í heiminn í Bretlandi í apríl á síðasta ári. Lianne er í haldi spænsku lögreglunnar en hún er grunuð um að hafa myrt Daniel og hina fimm ára gömlu Rebeccu. Móðurinni verður gert að sæta geðrannsókn en heimildarmenn Sky fréttastofunnar segja að allt líti út fyrir að hún hafi kæft börnin með plastpoka.
Mest lesið Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Innlent Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Innlent Fleiri fréttir Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa Sjá meira