Enski boltinn

Tímabilið er ekki búið hjá Ashley Cole

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ashley Cole.
Ashley Cole.

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, getur glaðst yfir þeim fréttum úr herbúðum Chelsea að vinstri bakvörðurinn Ashley Cole muni spila aftur á þessu tímabili.

Óttast var að Cole myndi missa af heimsmeistaramótinu í sumar vegna ökklameiðsla. Talsmaður Chelsea tilkynnti hinsvegar í dag að Cole sé á skjótum batavegi og aðgerð á honum hafi tekist vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×