Enski boltinn

Phil Brown hættur hjá Hull

Elvar Geir Magnússon skrifar
Phil Brown er hættur hjá Hull.
Phil Brown er hættur hjá Hull.

Phil Brown hefur látið af störfum sem knattspyrnustjóri úrvalsdeildarliðsins Hull City. Þetta var tilkynnt í morgun.

Aðstoðarmaður hans, Brian Horton, mun stýra liðinu ásamt Steve Parkin þar til nýr stjóri verður ráðinn.

Undir stjórn Brown komst Hull upp í úrvalsdeildina 2008. Liðinu hefur gengið illa að undanförnu og er í 19. sæti deildarinnar með 24 stig. Stjórn Hull fundaði með Brown í gærkvöldi og komst að því að best væri í stöðunni að hann myndi láta af störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×