Steinn Ármann og Davíð Þór fá fjórar stjörnur 11. maí 2010 11:30 Steinn Ármann, þéttur og vanmetinn leikari, er fyndinn í gríni eftir Ricky Gervais í Borgarleikhúsinu.
Ármann og Þór þoraLeikhús **** Villidýr/Pólitík eftir Ricky Gervais Þýtt og staðfært af flytjendum Sviðsetning: Gunnar B. GuðmundssonFyrirbærið Hafnarfjarðarbrandarar öðlaðist nýja merkingu þegar hópur skólafélaga þar sunnan að tók að láta á sér bera í opinberu lífi. Þar fóru fremstir í flokki árshátíðarskemmtikrafturinn Steinn Ármann, þéttur og vanmetinn leikari, og Davíð Þór Jónsson, renglulegur lífskúnstner sem markaði sér skákir á ýmsum sviðum: textahöfundur, eilífur guðfræðistúdent og fullorðin sál frá unga aldri.Saman eru þeir þessa dagana að flytja uppistand þýtt og umskorið frá enska grínistanum Ricky Gervais. Gervais er merkilegt fyrirbæri, síðsprottinn arftaki þeirrar kynslóðar breskra grínista sem nýlega var sýnt fram á að hafði lagt til örfá prósent af sketsum í Heilsubælið. Gervais stikar jaðarinn á hinu boðlega í sýningum sínum, fetar þröngt bil milli fordóma og ofboðs. Hann er trúr uppruna sínum, breskt samfélag, breskir og breyskir siðir eru hans akur. Og nú hafa menn talið það henta íslenskum markaðsaðstæðum að flytja tvær af þekktum efnisskrám hans yfir á íslensku.Uppistand er þetta ekki lengur, heldur ekki eftirherma, því textinn sem gera má ráð fyrir að Davíð hafi umsnúið og aðlagað er býsna íslenskur og alþjóðlegur um leið. Stór hluti af þessum húmor er sprottinn þegar menn stinga hausnum í klofið á sér: blautt er það, og talið allt klámfengið. Ungum hóp áhorfenda á föstudagskvöldið var vel skemmt, alla vega strákunum, því mikið var hlegið og dátt. Hvort stelpunum var eins skemmt veit ég ekki: þetta er mikill tittlingahúmor, gauragrín.Steinn og Davíð eru báðir fyndnir menn, Davíð móralskur, Steinn meira absúrd, báðir orðnir þaulvanir að láta brandarann falla á réttum stað, þekkja andrúmið, kunna listina. Þeir þurfa ekki að láta hátt og mikið, spaugið er sett fram af öryggi, fumlaust, og leikið á salinn. Mér hefur alltaf þótt gaman að sjá þá segja brandara. Þeir eru fyndnir strákar. Víst hefði ég kosið að þeir settu saman sitt eigið efni, byggðu sitt eigið gervi í stað Gervais. Ég efast ekki um að þeir gætu það vel ef einhver tryði á þá í slíkt uppistand. Það mátti líka heyra á íslenskun efnis Bretans að þeir voru óhræddir að takast á við ósvífni um þekktar íslenskar persónur, Hannes Hólmstein og Jónínu Ben. Það var ekki græskulaust grín heldur grimmt.Þeir eru báðir á sviðinu í senn í tvískiptu prógrammi en annar heldur sig til hlés meðan hinn blaðrar. Þeir eru mækaðir upp og það er löstur. Á föstudag lenti Steinn í vandræðum með mækinn sinn og hvað gerðist? Hann varð skýrari, tók betur um orðin, vandaði sig meira við flutninginn. Grínistinn þarf að tala beint og skýrt við áhorfendur. Það er partur af prógramminu, að kunna að hitta milli hlátranna, láta heyra í sér og verða að treysta á að talið heyrist af flytjandanum sjálfum. Í svo litlum sal sem Litla svið Borgarleikhúss er á ekki að nota mæk.Þegar litið var á heimasíðu Borgarleikhúss kom í ljós að það kostar sitt að hlæja í tvo tíma; nýlegar fréttir um endurbyggingu Austurbæjarbíós benda til að þar skapist nýr vettvangur fyrir grín sem þetta og vonandi finna þeir Davíð og Steinn hjá sér löngun til að halda áfram á þessu sviði, gera sitt eigið efni um okkar eigið umhverfi, okkar eigin Hafnarfjarðarbrandara.Páll Baldvin BaldvinssonNiðurstaða: Klámfengið og gróft gaman flutt af mikilli list.Hér má sjá stuttan bút úr sýningunni þar sem Steinn Ármann spáir í það þegar Guð fann upp kannabisplöntuna.
Mest lesið „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Lífið Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Halla byrjaði á Keto, missti tuttugu kíló og hætti á gigtarlyfjunum Lífið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Hjarðhegðun Íslendinga Lífið Fleiri fréttir „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Sjá meira