Leikskáld mótmæla niðurskurði á íslensku sjónvarpsefni 29. janúar 2010 16:10
Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á framleiðslu og innkaupum á innlendu efni sem boðaður er af útvarpsstjóra Páli Magnússyni. Stjórnin sendi frá sér ályktun þess efnis í dag og má lesa hér orðrétt: Menningarlegar skyldur Ríkisútvarpsins eru ótvíræðar samkvæmt lögum um stofnunina. Fyrirhugaður niðurskurður er skýlaust brot gegn þeim lögum og verður ekki annað séð en með tillögum sínum hafi útvarpsstjóri viðurkennt getuleysi sitt til að stýra stofnuninni samkvæmt þeim fyrirmælum sem lögin fela honum. Félag leikskálda og handritshöfunda skorar á stjórnvöld að endurnýja yfirstjórn RÚV svo tryggja megi að stofnunin gegni menningarhlutverki sínu. Íslensk þjóð stendur á tímamótum. Miklar breytingar eru í farvatninu og stórar tilfinningar ólga í samfélaginu. Skrásetning þessara atburða í heimildamyndum og túlkun tilfinninganna í leiknu innlendu sjónvarpsefni eru þjóðinni ekki einungis mikilvægur spegill í samtímanum heldur og ekki síður mikilvæg heimild komandi kynslóðum um þá tíma sem við nú lifum. Niðurskurður RÚV á framleiðslu og innkaupum á innlendu leiknu efni og heimildarmyndum mun skilja eftir sig óbætanlega eyðu í sögu þjóðarinnar til framtíðar. Menningarleg skammsýni núverandi útvarpsstjóra á ekki að verða til þess. Félag leikskálda og handritshöfunda hvetur stjórnvöld til að standa vörð um menningarlegt hlutverk Ríkisútvarpsins með þeim ráðum sem þeim eru tiltæk og til þess munu duga.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Sjá meira