Mikil vinna lögð í að uppræta spillingu innan fjármálakerfisins 13. janúar 2010 12:31 Gylfi Magnússon. Mynd/Anton Brink
Viðskiptaráðherra telur nær alveg víst að við rannsókn á bankahruninu komi í ljós að menn hafi brotið lög. Mikil vinna hafi verið lögð í að uppræta spillingu innan fjármálakerfisins. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra var spurður að því í viðtali á Bylgjunni hvort hann teldi að spilling hefði ríkt innan bankakerfisins í tíð útrásarinnar. Hann sagðist ekki geta fullyrt um það en það væri ljóst að þar hefði ríkt gífurlegur glannaskapur og dómgreindarskortur. Dómgreindaleysið hafi reyndar ekki aðeins verið bundið við fjármálakerfið heldur líka eftirlitsstofnanir. „Ég tel alveg víst að út af þessum rannsóknum hjá sérstökum saksóknara, Fjármálaeftirlitinu og öðrum slíkum aðilum muni því miður koma í ljós að það fóru ýmsir yfir strikið. Ekki bara á gráu svæði heldur beinlínis brutu lög. Það er auðvitað spilling og það á að refsa mönnum fyrir það en það er ekki mitt að skera úr því nákvæmlega hverjir gerðu hvað og hvernig á að refsa þeim," segir Gylfi. Í sama viðtali var hann einnig spurður að því hvort líðandi væri að Baldvin Valtýsson, sem stýrði Landsbankanum fyrir hrun eða á þeim tíma sem bankinn bauð upp á Icesave-reikningana, hefði enn yfirumsjón í bankanum en nú á vegum skilanefndar Landsbankans. En það kemur fram í DV í dag. Gylfi tók fram að hann hefði ekki náð að kynna sér innihald greinarinnar nákvæmlega og þyrfti því að hafa fyrirvara á svari sínu. „Ég vil þó segja að það er auðvitað ólíðandi fyrir þá sem sjá nú fram á að borga þennan Icesave-reikning, ef að þeir sem báru ábyrgð á honum, og nú er ég ekki að fullyrða að þessi maður geri það ég þekki ekki til mála, en almennt að þeir sem báru ábyrgð á þessari hryllilegu útrás Landsbankans sem við sjáum nú afleiðingarnar af eiga nú að fara leika einhver lykilhlutverk í hreinsa upp og fá það ríkulega launað," segir Gylfi. Hann var þá spurður um hvort verið væri að vinna nægilega vel að því að uppræta spillingu innan fjármálakerfisins. Því svaraði Gylfi þannig til að það væri verið að gera bókstaflega allt sem hægt væri til þess. Þá var Gylfi minntur á að skilanefndin væri á hans ábyrgð. Hann benti þá á að skilanefndin væri skipuð af Fjármálaeftirlitinu hann hefði ekki beint boðvald yfir því en fjármálaeftirlitið hefði reyndar ekki heldur boðvald yfir skilanefndinni. Hann beri þó á ábyrgð á málaflokknum í heils og ætli sem ráðherra og ætla að afla sér upplýsinga um málið, fyrr geti hann ekki lofað aðgerðum.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira