Enski boltinn

Tottenham styrkti stöðu sína í 4. sætinu - tvenna hjá Pavlyuchenko

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roman Pavlyuchenko og Jermain Defoe fagna marki í dag.
Roman Pavlyuchenko og Jermain Defoe fagna marki í dag. Mynd/Getty Images
Tottenham vann 3-1 sigur á Blackburn í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni og er þar með komið með þriggja stiga forskot á Manchester City í baráttunni um fjórða sæti deildarinnar.

Roman Pavlyuchenko skoraði tvö mörk fyrir Tottenham í leiknum á 55. og 85.mínútu en Jermain Defoe hafði komið Tottenham í 1-0 í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Christopher Samba minnkaði muninn með skallamarki á 80. mínútu.

Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á sem varamaður fyrir Luka Modric þegar 70 sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma og var einu sinni nálægt því að sóla sig í gegn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×