Enski boltinn

Allt rándýrt í Suður-Afríku í sumar

Elvar Geir Magnússon skrifar
Nordic Photos/Getty Images
Nordic Photos/Getty Images

Ríkisstjórn Suður-Afríku ætlar að rannsaka ásakanir um að hótel í landinu séu að hækka verð á gistingu upp úr öllu valdi í kringum heimsmeistaramótið í sumar.

Þessar fréttir koma mánuði eftir að tilkynnt var um að innanlands flugfélög munu sæta svipaðir rannsókn. Grunur leikur á um samráð um verð á flugi kringum mótið.

„Að undanförnu höfum við fengið fjölda ábendinga um að ýmis fyrirtæki í ferðamanniðnaði séu að hækka verðskrá sína í sumar gríðarlega. Við teljum að nauðsynlegt sé að rannsaka þetta og niðurstaðan gerð opinber," segir Marthinus van Schalkwyk, ferðamálaráðherra Suður-Afríku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×