Innlent

Kýldi lögreglumann í andlitið

Mynd/Pjetur

Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir brot gegn valdstjórninni.

Manninum er gefið að sök að hafa kýlt lögreglumann í andlitið. Atvikið átti sér stað í nóvember 2009. Maðurinn var í fangaklefa á lögreglustöðinni á Húsavík. Lögreglumaðurinn hafði afskipti af honum vegna skyldustarfa sinna og brást maðurinn við með þessum hætti.

Lögreglumaðurinn hlaut eymsli, mar og fleiður á nef og efri vör.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×