Viðskiptaþvinganir gegn Ísrael ekki til skoðunar 24. febrúar 2010 21:15 Mynd/Anton Brink
Í málefnum Ísraels og Palestínu hafa viðskiptaþvinganir á Ísrael ekki komið til alvarlegrar skoðunar, að minnsta kosti enn sem komið er. Þetta kemur fram í svari Össur Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, við fyrirspurn Önnu Pálu Sverrisdóttur, varaþingmanns Alþingis. Hann útilokar þó ekki að nýjum úrræðum verði beitt á næstu missirum. Anna Pála vildi vita hvort Össur teldi nauðsynlegt að beita Ísraelsríki viðskiptaþvingunum vegna mannréttindabrota í Palestínu og ólöglegrar landtöku Ísraela þar. Össur segir að alþjóðasamfélagið hafi ekki talið tímabært að beita slíkum þvingunum og það hafi Ísland, sem og önnur Norðurlönd, verið sammála um. Þess í stað hafi megináhersla verið lögð á að endurvekja friðarviðræðurnar og að fá Ísrael til að stöðva landtöku á hernumdu svæðunum á Vesturbakkanum. „Íslensk stjórnvöld hafa stutt þessa nálgun og í því samhengi lagt þunga áherslu á skyldu Ísraelsríkis að virða mannréttindi Palestínumanna og uppfylla skyldur sínar sem hernámsaðila samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum. Þessu hefur verið komið á framfæri bæði tvíhliða við Ísraelsstjórn og einnig í málflutningi á alþjóðavettvangi, m.a. í ræðu utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York síðastliðið haust og á fundum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf," segir Össur. Hann segir brýnt að alþjóðasamfélagið, ekki síst Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið, beiti sér með virkari hætti í friðarferlinu. „Takist ekki að endurvekja friðarviðræðurnar og sýna fram á raunverulegan árangur á næstu missirum er ekki útilokað að alþjóðastofnanir eða ríkjahópar horfi til þess að beita nýjum úrræðum til að knýja fram niðurstöðu í málinu og stuðla að virðingu fyrir mannréttindum og mannúðarlögum," segir Össur.
Mest lesið Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Innlent Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Innlent Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir Innlent Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Erlent Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Erlent Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Erlent Íbúar Ártúnsholts hrósa sigri gegn borginni - í bili Innlent Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Erlent Fyrsta trampólínlægðin væntanleg á morgun Innlent Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Skæð fuglaflensa greindist á Norðurlandi Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Þingmenn ræða stjórnlausa veðmálastarfsemi: Íslendingar Evrópumeistarar Stórt framfaraskref að færa Blóðbankann í Kringluna Austurstræti orðið að göngugötu Íbúar Ártúnsholts hrósa sigri gegn borginni - í bili Fyrsta trampólínlægðin væntanleg á morgun Dóttirin fær einungis að mæta einu sinni í viku í frístund Drónar í Danaveldi og Blóðbankinn opnar í Kringlunni „Skoðun mín skiptir ekki máli“ Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir 3,2 stiga skjálfti í Mýrdalsjökli Óskaði aðstoðar með gríðarstóran hníf Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Enska verði orðin ráðandi í atvinnulífi um miðja öld Heiðra Íslendinga með því að gera 17. júní að fánadegi Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Skrítið að vita af ósprunginni handsprengju í næstu götu Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Löng bið Haraldar, umdeild kynjafræði og íslenska í útrýmingarhættu Borgin leggur bílstjórum línurnar Rafmagn aftur komið á í öllum hverfum Hélt ræðu gráti nær Gripnir glóðvolgir með íslensk lundaegg í Hollandi Stúdentar leggjast gegn sameiningunni Ekki slys á gangandi vegfaranda í „hættulegum beygjuvösum“ í tuttugu ár Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Nýtt stjórnsýslustig framhaldsskóla: „Þetta er eins og vont trúðaleikrit“ Bein útsending: Gervigreind og vísindamiðlun Sjá meira