Innlent

Telur skipulag virkjana á Hengilssvæði ólöglegt

Skipulag jarðvarmavirkjana á Hellisheiði er ólöglegt, að mati Atla Gíslasonar, lögmanns og þingmanns Vinstri grænna.

Ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra í síðasta mánuði að hafna aðalskipulagi vegna virkjana í neðri Þjórsá, á þeim forsendum að Landsvirkjun hefði greitt fyrir skipulagsvinnuna, er tilefni greinar tveggja forystumanna Vinstri grænna í Fréttablaðinu í dag, þeirra Atla Gíslasonar þingmanns, og Bergs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra þingflokksins.

Þar vekja þeir athygli á því að milli Sveitarfélagsins Ölfuss og Orkuveitu Reykjavíkur er í gildi fjögurra ára gamalt samkomulag sem meðal annars feli í sér að bæjarstjórn Ölfuss veiti framkvæmdaleyfi og greiði fyrir skipulagsmálum eins hratt og unnt er vegna áformaðra framkvæmda Orkuveitunnar á Hengilssvæðinu. Jafnframt feli samkomulagið í sér að Orkuveitan greiði sveitarfélaginu fyrir þann kostnað sem hlýst af auknu álagi á stjórnsýslu og meti sveitarfélagið tekjur af samkomulaginu ígildi 500 milljóna króna.

Segja þeir Atli og Bergur að með því sé verið að fótumtroða rétt fólks til sanngjarnrar aðkomu þegar búið sé að ákveða niðurstöðuna fyrirfram í ferli sem feli í sér kynningarfundi og möguleika á að senda inn athugasemdir.

Þegar fréttastofan spurði Atla hvort hann teldi að skipulag virkjana á Hellisheiði væri þar með ólöglegt svaraði Atli að hann teldi svo vera. Þegar Atli var spurður hvort að hann teldi að stjórnvöld ættu þá að beita sér og stöðva áformaðar framkvæmdir kvaðst hann ekki vita hvort búið væri að staðfesta skipulagið og hvort ráðherra hefði tök á því á stöðva ferlið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×