Dönsk sérsveit berst við gengin 24. febrúar 2010 08:11 MYND/AP
Danska lögreglan hefur stofnað sérsveit sem berst gegn skipulagðri glæpastarfsemi mótorhjólagengja. Nýja sveitin, sem gengur undir nafninu "Task Force Öst" hefur síðustu daga komið upp um stórfelld fíkniefnaviðskipti hjá meðlimum mótorhjólagengja og sú breyting hefur orðið á að nú er lögreglan að ná að tengja glæpina við háttsetta meðlimi samtakanna en hingað til hefur það reynst þrautin þyngri í Danmörku. Þann ellefta febrúar var varaforseti eins klúbbs handtekinn með tvö kíló af amfetamíni og daginn eftir voru fjórir meðlimir teknir með 44 kíló af hassi. Síðasta mánudag uppgötvaði sérsveitin síðan 15 kíló af amfetamíni og átta af hassi. Magnus Andersen lögreglumaður segir í samtali við danska ríkisútvarpið að árangur síðustu daga sé afrakstur mikillar vinnu en sérsveitin hóf störf í desember í fyrrra. Hana skipa áttatíu lögreglumenn sem gera ekkert annað en að rannsaka glæpagengi og koma upp um glæpi þeirra. Hingað til hefur mestur árangur náðst gegn meðlimum Bandidos mótorhjólaklúbbsins en þeir hafa staðið utan við stríð sem Hells Angels klúbburinn hefur háð gegn meðlimum úr innflytjendaklíkum. Það þykir benda til þess að á meðan hafi Bandidos náð að hasla sér meiri völl á eiturlyfjasölumarkaðnum á meðan aðrir voru uppteknir við að berast á banaspjótin.
Mest lesið „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Innlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Erlent Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Innlent Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Innlent Trump segir „alvöru hungursneyð“ ríkja á Gasa Erlent Á annan tug í valnum eftir að Rússar sprengdu fangelsi í loft upp Erlent Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Innlent Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Innlent Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Innlent Fleiri fréttir Á annan tug í valnum eftir að Rússar sprengdu fangelsi í loft upp Trump segir „alvöru hungursneyð“ ríkja á Gasa Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Vill að skýrslutaka Murdochs fari fram eins fljótt og hægt er Tóku tugi af lífi eftir að hafa fengið lausnarfé Elsti Gallagher-bróðirinn ákærður fyrir nauðgun Krísa yfirvofandi: Þurr svæði stækka og þorna hraðar Fækkar dögunum sem hann gaf Pútín: „Ég held ég viti þegar svarið“ Vara við hópeitrunum af völdum THC eftir atvik í fyrra Þrír látnir eftir að lest fór af sporinu Ætla að breyta heræfingum eftir skammir frá systur Kims Semja um vopnahlé 64 prósent myndu þiggja gjaldfrjáls þyngdarstjórnunarlyf Skotárás í Bangkok: Skaut fimm til bana og fyrirfór sér Deilur Repúblikana um Epstein-skjölin magnast enn Gera tíu klukkustunda „mannúðarhlé“ á árásum Segir nýjan viðskiptasamning þann „stærsta í sögunni“ Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Sjá meira