Útgönguleið fyrir unga afbrotamenn 10. apríl 2010 06:00 Átök glæpagengja hafa sett óskemmtilegan svip á mannlífið í Kaupmannahöfn á síðustu árum. nordicphotos/AFP
Undanfarin ár hafa blóðug átök milli glæpagengja í Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku hvort tveggja vakið ótta almennings og magnað spennu víða í hverfum innflytjenda. Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn hafa nú gripið til þess ráðs að bjóða ungmennum sem leiðst hafa út á glæpabrautina útgönguleið, sem felst í því að þeim er hjálpað við að ljúka námi, finna sér atvinnu og útvega sér húsnæði með handleiðslu stuðningsfulltrúa frá borginni. Nú þegar hafa 40 ungmenni þegið boðið en vonast er til þess að á hverju ári geti um hundrað manns nýtt sér þetta úrræði. Talið er mögulegt að ná til 400 ungmenna í glæpaheiminum, auk þess sem vinna inni í fangelsum gæti náð til enn fleiri. Danskir fjölmiðlar hafa í liðinni viku skýrt frá þessu verkefni, sem er í þann veginn að fara af stað eftir nokkurn undirbúningstíma. Um framkvæmdina sér SSP, sem er samstarfsvettvangur skóla, félagsmálayfirvalda og lögreglu í Kaupmannahöfn. „Það er mjög erfitt fyrir mörg ungmenni að fá atvinnu og það liggur þeim þungt á hjarta,“ er haft eftir Michael Melbye, framkvæmdastjóra SSP í Kaupmannahöfn, í danska dagblaðinu Berlingske Tidende. „Svo getur verið nauðsynlegt að hjálpa þeim með búsetu, svo þeir búi ekki hjá glæpafélögum sínum eða í bráðabirgðahúsnæði,“ segir hann einnig. Sérstök áhersla er lögð á að hjálpa þeim að taka upp þráðinn í skóla og sjá til þess að þeir geti lokið námi. Það bæti mjög stöðu þeirra til þess að finna sér heillavænlega fótfestu í lífinu. Meginhugmyndin er sú að það skili ekki fullnægjandi árangri að láta lögregluna eina um að berjast gegn glæpastarfsemi. „Við höfum áttað okkur á því að ef við tökum ekki á okkur ábyrgð og veitum þessu forystu, þá hjálpar það ekki mikið að segja að lögreglan eigi að leysa vandann,“ hefur Berlingske eftir Frank Jensen, borgarstjóra í Kaupmannahöfn. „Við verðum að gera eitthvað til að koma í veg fyrir að ungt fólk fari inn í umhverfi glæpagengjanna og hjálpa þeim sem vilja komast út.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Fleiri fréttir Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Sjá meira