Innlent

Lýst eftir Björtu

Björt Karlsdóttir.
Björt Karlsdóttir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Björtu Karlsdóttur, 24 ára. Hún strauk úr afplánun fangelsisrefsingar í gær en Björt var vistuð á Landspítalanum vegna veikinda.

Hún er ekki talin hættuleg en nauðsynlegt er að Björt komist undir læknishendur sem fyrst. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Bjartar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×